Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 32. gr. laga nr. 73/1997 — Skipulags- og byggingarlög

Hæstiréttur birt 12. október 2017

562/2016

Bjarnleifur Bjarnleifsson og Lilja G. Gunnarsdóttir (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Magnúsi L. Sigurðssyni og Ólafíu K. Bjarnleifsdóttur (Guðjón Ármann Jónsson hrl)
Lykilorð: Fasteign. Landamerki. Samningur.

Aðilar deildu um mörk milli fasteiganna Fagurhóls í eigu B og L og Grásteins í eigu M og Ó. B og L miðuðu kröfu sína um mörkin við teikningu frá árinu 2001, sem var endurskoðuð á árinu 2002, en M og Ó við lóðarblað frá árinu 2006. B og L keyptu land sitt úr landi M og Ó með kaupsamningi og afsali á árinu 2009. Í afsalinu var vísað til fyrrgreinds lóðarblaðs, sem var með hnitsetum mörkum, og sagt að stærð landsins samkvæmt þeirri teikningu væri 97,5 ha. Talið var að með afsalinu hefðu B og L því ekki getað öðlast eignarhald yfir stærra landi úr eign M og Ó, eins og þau miðuðu kröfu sína við. Í því sambandi gæti engu skipt afmörkun landsins á teikningunni frá árinu 2002 og samskipti aðila allt aftur til ársins 1996 þegar M og Ó keyptu í öndverðu allt landið. Voru M og Ó því sýknuð af kröfu B og L.

Héraðsdómur Suðurlands birt 7. september 2015

E-176/2015

Bjarnleifur Bjarnleifsson og Lilja G. Gunnarsdóttir (Arndís Sveinbjörnsdóttir hdl) gegn Magnúsi L. Sigurðssyni og Ólafíu K. Bjarnleifsdóttur (Pétur Már Jónsson hdl)

Ágreiningur var milli aðila um landamerki jarðar. Voru stefndu sýknuð af kröfum stefnenda með vísan til bindandi samkomulags um landamerki í kaupsamningi milli aðila.