Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 68/1997, um Lánasjóð landbúnaðarins, með síðari breytingum. nr. 68/2005

Hæstiréttur birt 28. janúar 2016

22/2016

LBI hf (Kristinn Bjarnason hrl) gegn Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda (Bjarni Þór Óskarsson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem krafa S að fjárhæð 80.217.448 kr. var viðurkennd við slit LBI hf. í réttindaröð sem almenn krafa samkvæmt 113. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskiptaskipti o.fl. S lýsti kröfu við slit LBI hf. á grundvelli skuldabréfs. Deildu aðilar um það hvernig reikna skyldi verðbættan höfuðstól skuldabréfsins. S vildi notast við vísitölu neysluverðs þann 1. apríl 2009 en LBI hf. vildi notast við dagvísitölu neysluverðs þann 22. apríl 2009. Í úrskurði héraðsdóms, sem staðfestur var í Hæstarétti með vísan til forsendna hans, kom meðal annars fram að ófrávíkjanleg ákvæði laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og reglna Seðlabankans nr. 492/2001 heimiluðu ekki útreikning með þeim hætti sem LBI hf. hafði leitast eftir að byggja á við útreikning kröfu S.