Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 1. gr. laga nr. 66/1995 — Lög um grunnskóla

Hæstiréttur birt 19. júní 2008

83/2008

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Andra Má Jóhannssyni (Brynjar Níelsson hrl)
Lykilorð: Kynferðisbrot. Börn.
Málaflokkur: Kynferðisbrot

AM var sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn A, nemanda við grunnskólann á X, en AM var kennari hennar. Taldist háttsemi hans varða við 1. mgr. 201. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og breytti engu þótt A hafi verið fús til að hafa við hann kynferðislegt samneyti. Brot AM þóttu alvarleg og refsing hans hæfilega ákveðin fangelsi í 15 mánuði.

Hæstiréttur birt 22. september 2005

51/2005

Ólöf Adda Sveinsdóttir (Ástráður Haraldsson hrl, Eva Bryndís Helgadóttir hdl) gegn Áshreppi og Byggðasamlagi Húnavallaskóla (Viðar Lúðvíksson hrl, Jón Ármann Guðjónsson hdl, Þorsteinn Einarsson hrl)

Ó krafði hreppinn Á og byggðasamlagið B um greiðslu ýmiss konar kostnaðar sem hlaust af því að hún þurfti að halda annað heimili vegna skólagöngu dóttur sinnar í sérskóla í Reykjavík. Ekki var á það fallist að 1. gr. og 37. gr. laga nr. 66/1995 um grunnskóla eða reglugerð nr. 389/1996 leiddi til skyldu Á eða B til að greiða umræddan kostnað, þar sem hann taldist vera framfærslukostnaður en ekki kostnaður af skólagöngu. Á og B voru því sýknaðir af kröfu Ó.