Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 6. mgr. 6. gr. laga nr. 65/1976 — Jarðalög

Hæstiréttur birt 16. mars 2006

440/2005

Húnavatnshreppur (Már Pétursson hrl) gegn Hauki Pálssyni Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur, Víði Frey Guðmundssyni og Guðmundi Ingvarssyni til réttargæslu

H krafðist viðurkenningar á rétti sínum til að neyta forkaupsréttar að jörðinni Á með vísan til 30. gr. þágildandi jarðalaga nr. 65/1976, en ákvörðun H þess efnis hafði verið felld út gildi með úrskurði landbúnaðarráðuneytisins. Í héraðsdómi, sem staðfestur var með vísan til forsendna hans, var byggt á því að H hefði neytt forkaupsréttar að jörðinni í þeim eina tilgangi að selja hana aftur til E, eiganda nærliggjandi jarðar, til að skapa honum skilyrði til frekari skógræktar. Fyrir lá að HP, kaupandi jarðarinnar, hafði gert H grein fyrir því að hann hygðist stunda skógrækt á jörðinni. Talið var að H hefði borið að kanna nánar áform HP og hvort þau gætu farið saman við hagsmuni H af nýtingu jarðarinnar. Það gerði H ekki og var ekki sýnt fram á að lögmætum hagsmunum hreppsins hafi verið stefnt í hættu ef kaup HP á jörðinni næðu fram að ganga eða að hreppurinn hefði brýna hagsmuni af því að E stundaði skógrækt á jörðinni frekar en aðrir. Af þessum ástæðum og með hliðsjón af því að beiting forkaupsréttar var íþyngjandi fyrir HP og inngrip í samningsfrelsi var kröfu H hafnað.

Hæstiréttur birt 18. nóvember 2004

196/2004

Svínavatnshreppur (Már Pétursson hrl) gegn Hauki Pálssyni og Oddnýju Maríu Gunnarsdóttur (Bjarni Þór Óskarsson hrl)

Hreppurinn S höfðaði mál gegn H og O þar sem hann krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur sinn til að neyta forkaupsréttar að jörðinni Á vegna kaupsamnings V og H um jörðina, en H seldi í framhaldi af því O jörðina. Þá krafðist S þess að felldur yrði úr gildi úrskurður landbúnaðarráðuneytisins í máli S og H þar sem ákvörðun S um að neyta forkaupsréttarins var felld úr gildi. Málinu var vísað frá héraðsdómi með vísan til þess að V, seljanda jarðarinnar, hafi ekki verið stefnt í málinu við hlið kaupandans.