Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 38. gr. laga nr. 65/1976 — Jarðalög

Hæstiréttur birt 27. maí 2003

168/2003

Hrefna Kristjánsdóttir (Óskar Sigurðsson hdl) gegn íslenska ríkinu (Guðrún Margrét Árnadóttir hrl)

Í hafnaði beiðni H um að fá að kaupa ábúðarjörð sína, með bréfi 28. júní 2001. Tók Í málið upp á ný eftir aðfinnslur umboðsmanns Alþingis, án þess að fyrri ákvörðun væri þó afturkölluð. Þá tilkynnti Í með bréfi til H 15. október 2002 þá fyrirætlun sína að afgreiða erindi hennar með sama hætti og gert hafði verið áður, þ.e. með því að hafna beiðninni. H höfðaði mál í nóvember 2002, áður en endanlegt svar Í lá fyrir í málinu, og krafðist þess að viðurkenndur yrði réttur hennar til að kaupa jörðina. Var málinu vísað frá með hinum kærða úrskurði. Eftir að málið hafði verið höfðað kom afstaða ráðuneytisins um að synja bæri erindi H, einnig skýrt fram í bréfi til ríkislögmanns 3. mars 2003. Með vísan til þess sem fram var komið um afstöðu ráðuneytisins til erindis H, var talið að hún hafi haft lögvarða hagsmuni af því að fá skorið úr um ætlaðan rétt sinn til að kaupa jörðina. Hafi henni verið heimilt að gera slíka viðurkenningarkröfu á hendur Í, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð einkamála. Með vísan til þessara sömu atriða stóð ákvæði 1. mgr. 26. gr. laganna því ekki í vegi að H fengi leyst úr fyrrnefndri kröfu sinni að efni til. Þá var málatilbúnaður H að öðru leyti ekki talinn með þeim hætti að varðað gæti frávísun og var hinn kærði úrskurður felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.