Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 26. gr. laga nr. 64/1976 — Ábúðarlög

Hæstiréttur birt 18. febrúar 1999

292/1998

Kristín R. Thorlacius (Aðalsteinn E. Jónasson hrl) gegn prestssetrasjóði (Þorsteinn Júlíusson hrl)
Lykilorð: Ábúð. Leigusamningur.
Málaflokkur: Leiguréttur

Deilt var um túlkun á leigusamningi sem Þ, sóknarprestur á S, gerði við þrjá bændur um óræktað land úr landareign S, sem bændurnir hugðust rækta. Var landið leigt til 20 ára frá 1972, en að þeim tíma liðnum skyldi það falla aftur án endurgjalds undir S hefði samningurinn ekki verið framlengdur. Sóknarpresturinn R tók við S í júlí 1974 og í úttekt sem var þá gerð var leigusamningsins getið. Kom samningurinn til framkvæmda 10. júní 1974 er ráðuneytisstjóri dóms- og kirkjumálaráðuneytisins ritaði á hann um samþykki. R lést í nóvember 1995 og fékk kona hans K leyfi til setu í óskiptu búi. Í júlí 1996 fór fram úttekt á S þegar G tók við staðnum. Þar kom m.a. fram að á grundvelli leigusamningsins félli 41 ha lands undir S sem ræktað land. Ágreiningur var um nýrækt og krafði K Prestsetrasjóð, á grundvelli 16. gr. ábúðarlaga, um greiðslu fyrir þá verðmætaaukningu sem orðið hafði á landinu á leigutímanum, þar sem R hafi verið aðili að leigusamningnum. Talið var að túlka bæri ákvæði ábúðarlaganna svo að það tæki til framkvæmda sem ábúandi stendur sjálfur fyrir, og jafnframt að í þessu tilviki hefði verið um að ræða meiri háttar jarðarbót í skilningi ábúðarlaga og að hún hefði verið á forræði landsdrottins og gerð á hans vegum. Því var Prestsetrasjóður sýknaður af kröfum K.