Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 1. mgr. 141. gr. laga nr. 60/1998 — Lög um loftferðir

Hæstiréttur birt 16. mars 2015

176/2015

Ákæruvaldið (Hulda Elsa Björgvinsdóttir saksóknari) gegn X (Sigurður G. Guðjónsson hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem máli Á á hendur X var vísað frá dómi. Í niðurstöðu Hæstaréttar kom fram að í kæru Á segði það eitt um ástæður, sem kæran væri reist á, að vísað væri til sjónarmiða Á sem reifuð væru í hinum kærða úrskurði. Taldi dómurinn, með vísan til 2. mgr. 193. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála, að ófullnægjandi væri að láta við það sitja að vísa til þess sem fram hefði komið við meðferð málsins í héraði fyrir uppkvaðningu úrskurðarins. Þá var ekki talið að hægt væri að bæta úr þeim annmarka á kærunni með því að skila greinargerð til Hæstaréttar sem hefði að geyma röksemdir Á fyrir kröfu hans. Samkvæmt þessu var málinu vísað frá Hæstarétti.

Héraðsdómur Suðurlands birt 9. júní 2006

S-295/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson) gegn Einari Birni Ingvasyni og Margréti Bertu Valsdóttur (Kristján Stefánsson hrl)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Maður og kona voru sakfelld fyrir þjófnaðarbrot og fíkniefnabrot. Maðurinn var sýknaður af ákæru fyrir brot á reglugerð um mannflutninga í loftförum, þar sem þeirri háttsemi sem ákærða var gefin að sök var ekki lýst í settum lögum. Refsing konunnar var ákveðin fangelsi í 1 mánuð, skilorðsbundið í tvö ár, auk þess sem henni var gert að greiða sekt, refsing mannsins var ákveðin 2 mánaða fangelsi.