Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á efnalögum, nr. 61/2013, með síðari breytingum (breytt hugtakanotkun, einföldun á framkvæmd, EES-reglur um kvikasilfur). nr. 57/2019

Landsréttur birt 26. febrúar 2021

493/2020

Ákæruvaldið (Hulda María Stefánsdóttir saksóknari) gegn Bartlomiej Szelengiewicz (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Dawid Stanislaw Dolecki (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), Grzegorz Marcin Krzton (Steinbergur Finnbogason lögmaður), Jakub Pawel Rzasa (Kristján Stefánsson lögmaður), Jaroslava Davíðsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og Krzysztof Sieracki (Páll Kristjánsson lögmaður)
Málaflokkur: Fíkniefnamál

B, D, G, JR, JD og K voru sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot með því að hafa dagana 27. til 29. febrúar 2020 í félagi haft í vörslum sínum í sölu- og dreifingarskyni og jafnframt staðið að framleiðslu á samtals 1.896,50 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 34-66% styrkleika og samtals 1.071,15 g af amfetamíni, sem hafði á bilinu 1,7- 3,2% styrkleika. Var háttsemi þeirra talin varða við 173. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 en ekki var á það fallist að háttsemi þeirra teldist vera liður í skipulagðri brotastarfsemi í skipulögðum brotasamtökum í skilningi 175. gr. a almennra hegningarlaga. Þá var JR jafnframt sakfelldur fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa haft í vörslum sínum samtals 5,58 g af marijúana og samtals 57,17 g af amfetamíni sem lögregla fann við leit á JR og á tveimur tilgreindum dvalarstöðum hans. Voru þau brot JR talin varða við 2. gr., sbr. 5. og 6. gr. laga nr. 65/1974 um ávana- og fíkniefni. B, D og K voru hins vegar sýknaðir af þeirri háttsemi að hafa losað skaðleg efni sem notuð voru við framleiðslu fíkniefnanna í umhverfið og valdið þannig yfirvofandi hættu á verulegu tjóni á umhverfinu. Við ákvörðun refsingar var litið til þess að brot B, D, G, JR, JD og K var þaulskipulagt og framið í samverknaði, sbr. 2. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga, þótt aðkoma þeirra að brotinu hefði verið með misjöfnum hætti. Litið var svo á að þau ættu sér ekki málsbætur. Einnig var við ákvörðun refsingar litið til 1., 3., 6. og 7. töluliðar 1. mgr. 70. gr. almennra hegningarlaga. Refsing JR var ákveðin fangelsi í þrjú ár og sex mánuði, refsing B, D og K fangelsi í þrjú ár hver og G og JD fangelsi í tvö ár og sex mánuði hvort. Til frádráttar refsingu B, D, JR, JD og K kom tilgreint gæsluvarðhald sem þau höfðu sætt, sbr. 76. gr. almennra hegningarlaga. Ennfremur voru gerð upptæk ýmis tæki, búnaður og efni, sem lögregla hafði lagt hald á, sem og bifreið og reiðufé í eigu JD.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 8. júlí 2020

S-3221/2020

Ákæruvaldið (Anna Barbara Andradóttir settur saksóknari) gegn Bartlomiej Szelengiewicz (Jón Bjarni Kristjánsson lögmaður), Dawid Stanislaw Dolecki (Stefán Karl Kristjánsson lögmaður), Grzegorz Marcin Krzton (Steinbergur Finnbogason lögmaður), Jakub Pawel Rzasa (Ólafur Valur Guðjónsson lögmaður), Jaroslövu Davíðsson (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson lögmaður) og Krzysztof Sieracki (Páll Kristjánsson lögmaður)
Lykilorð: Ávana- og fíkniefni.
Málaflokkur: Fíkniefnamál

Ákærðu sakfelld fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot og þátttöku í skipulagðri brotastarfsemi. Refsing á bilinu 3 til 4 ár.