Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 16. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög

Hæstiréttur birt 22. september 2005

4/2005

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari) gegn X (Ólafur Garðarsson hrl)
Lykilorð: Tollalagabrot. Saknæmi.
Málaflokkur: Skattaréttur

X var sem stjórnarmanni og framkvæmdastjóra tiltekins félags gefið að sök tollalagabrot með því að hafa veitt tollayfirvöldum rangar upplýsingar í aðflutningsskýrslum og meðfylgjandi gögnum við innflutning tveggja vörusendinga á vegum félagsins. Talið var ósannað að X hefði staðið ásetningur til verknaðarins né að X yrði metinn hann til sakar á grundvelli stórfellds gáleysis, sbr. 1. mgr. 126. gr. tollalaga nr. 55/1987. Var X því sýknaður. Þá var ekki efni til að fallast á kröfu ákæruvalds um upptöku.

Hæstiréttur birt 7. maí 2002

163/2002

Tollstjórinn í Reykjavík (Júlíus B. Georgsson lögfræðingur) gegn Fönix ehf (Sveinn Andri Sveinsson hrl)

T ákvað að leggja hald á tiltekinn fjölda geisladiska úr sendingu til F ehf. og senda lögreglu málið til frekari rannsóknar. Ágreiningslaust var að í aðflutningsskýrslu vegna umræddrar sendingar var aðeins gerð grein fyrir óverulegum hluta geisladiskanna. Varð sú vitneskja T tilefni til að kanna innflutning F ehf. á árunum 2000 og 2001. Gerði T í framhaldi af því margar athugasemdir við aðflutningsskýrslur F ehf. og féllst félagið á flestar þeirra. Með hliðsjón af 126. gr. tollalaga nr. 55/1987 með áorðnum breytingum og 1. mgr. 136. gr. sömu laga, var talið að til þess kynni að koma að hinir haldlögðu geisladiskar yrðu gerðir upptækir. Með vísan til 1. mgr. 78. gr. laga nr. 19/1991 var hald á þeim því staðfest.