Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 148. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög

Hæstiréttur birt 16. maí 2002

108/2002

Samskip hf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl) gegn Jóni Ingþórssyni (Jónas Haraldsson hrl)

Skipverjinn J hafði leynt tollskyldum varningi um borð og var því talið ótvírætt að skipstjóri hefði haft heimild samkvæmt 6. tl. 1. mgr. 24. gr. sjómannalaga nr. 35/1985 til að víkja J úr skipsrúmi vegna brota hans. Þar sem það var ekki gert innan þess 7 daga frests sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 24. gr. sömu laga, og S hf. hafði ekki sýnt fram á að í þessu tilviki væru sérstakar ástæður sem réttlættu lengri frest, var uppsögn J talin ólögmæt. Á þeim grundvelli átti J rétt til bóta samkvæmt 1. mgr. 25. 25. gr. sjómannalaga, sbr. 9. gr. laganna.

Hæstiréttur birt 16. maí 2002

457/2001

Samskip hf (Hrafnhildur Stefánsdóttir hrl) gegn Gunnari Hilmarssyni (Jónas Haraldsson hrl)

Skipverjinn G hafði leynt tollskyldum varningi um borð og var því talið ótvírætt að skipstjóri hefði haft heimild samkvæmt 6. tl. 1. mgr. 24. gr. sjómannalaga nr. 35/1985 til að víkja G úr skipsrúmi vegna brota hans. Þar sem það var ekki gert innan þess 7 daga frests sem mælt er fyrir um í 2. mgr. 24. gr. sömu laga, og S hf. hafði ekki sýnt fram á að í þessu tilviki væru sérstakar ástæður sem réttlættu lengri frest, var uppsögn G talin ólögmæt. Á þeim grundvelli átti G rétt til bóta samkvæmt 1. mgr. 25. 25. gr. sjómannalaga, sbr. 9. gr. laganna.