Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 5. mgr. 136. gr. laga nr. 55/1987 — Tollalög
Kærumál. Hald. Upptaka. Áfengislög. Einkamál. Frávísunarúrskurður felldur úr gildi. H kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem máli hans á hendur T var vísað frá dómi. Í málinu krafðist H ógildingar á haldlagningu og síðari upptöku tollstjóra á vökva sem notaður er til matargerðar, en inniheldur nokkurt áfengi. Krafðist H einnig skila á vökvanum. Talið var að H bæri réttur til þess að fá úrlausn um réttindi þau, er kröfugerð hans lyti að. Ekki var fallist á að með mál, er höfðað væri af einkaaðila til ógildingar á haldlagningu og upptöku eigna og skila á þeim, með þeim hætti sem gert væri í málinu, bæri að fara eftir lögum um meðferð opinberra mála nr. 19/1991. Talið var að með mál H ætti þess í stað að fara eftir reglum laga um meðferð einkamála nr. 91/1991. Var hinn kærði úrskurður því felldur úr gildi og lagt fyrir héraðsdómara að taka málið til efnismeðferðar.