Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 19. gr. laga nr. 54/1962 — Lög um þjóðskrá og almannaskráningu
A krafði V hf. og L hf. um greiðslu vátryggingabóta 2011 vegna andláts eiginmanns hennar og tveggja stjúpdætra í skipbroti í Víetnam 2010. Krafa A byggði annars vegar á fjölskyldutryggingu og farkortstryggingu hjá V hf. og hins vegar líf- og sjúkdómatryggingu hjá L hf. Félögin höfnuðu bótaskyldu í desember 2011. Fallist var á afstöðu þeirra með úrskurði úrskurðarnefndar í vátryggingamálum 2013 þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að fyrrgreindur vátryggingaratburður hafi átt sér stað. Höfðaði A í kjölfarið mál þetta gegn V hf. og L hf. Í dómi héraðsdóms var rakið að lögreglurannsókn hefði leitt í ljós að skráning andlátanna í Þjóðskrá hafi byggt á dánarvottorðum sem hafi ekki verið gefin út af þeim yfirvöldum í Víetnam sem þau voru sögð stafa frá. Það hafi fengist staðfest af Interpol í Víetnam og sendiráði Víetnam í Kína. Var sönnun um andlát hvorki talin geta byggt á fyrrgreindum vottorðum frá Víetnam né vottorðum Þjóðskrár. Með vísan til gagna málsins fengist ekki séð að önnur dánarvottorð sem A aflaði í kjölfar niðurstöðu Interpol hafi verið gefin út af bærum stjórnvöldum í Víetnam. Voru þau vottorð því ekki talin fullnægja kröfum um sönnun um vátryggingaratburðinn. Ekkert þeirra vitna sem A kvaddi til skýrslugjafar fyrir dómi hafi borið kennsl á lík hina látnu heldur hafi þau öll byggt á frásögnum A sjálfrar, annarra yfirvalda sem byggðu á frásögn A eða upplýsingum frá ónafngreindum aðilum. Samkvæmt íslenskum rétti væri það meginregla að sönnun um andlát væri studd vottorði læknis. Erlend vottorð lækna væru jafnan metin gild yrði andlát erlendis. Á hinn bóginn hafi engin gögn eða upplýsingar komið fram í málinu um aðkomu læknis að skoðun á líkum eða niðurstöðu um andlát og dánarorsök. Með hliðsjón af þessu, öðrum atvikum og gögnum málsins var A ekki talin hafa sannað með fullnægjandi hætti að vátryggingaratburðurinn hafi átt sér stað. Voru V hf. og L hf. því sýknuð af öllum kröfum A. Kröfu A fyrir Landsrétti um ómerkingu hins áfrýjaða dóms var hafnað og var hann staðfestur með vísan til forsendna um annað en málskostnað.
Stefnandi krafði stefndu um greiðslu dánarbóta, á grundvelli líftrygginga og annarra vátrygginga hjá stefndu, vegna andláts eiginmanns síns og tveggja stjúpdætra, sem stefnandi kvað hafa drukknað í Víetnam í október 2010. Dánarvottorð sem stefnandi framvísaði í upphafi voru, að fenginni staðfestingu víetnamska ríkisins, talin fölsuð og önnur vottorð sem síðar var aflað reyndust ekki gefin út af þar til bærum yfirvöldum í Víetnam. Stefnandi var ekki talin hafa sýnt fram á að sá vátryggingaratburður sem bótakröfur hennar byggðust á hefði gerst í raun og veru og voru stefndu því sýknaðir af öllum kröfum stefnanda.