Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lög: Lög um brottfall ýmissa laga á sviði fjármálamarkaðar (úrelt lög). nr. 50/2024
Hafnað var kröfu sóknaraðila um ógildingu ákvörðunar sýslumanns um endursendingu fjárnámsbeiðni, þar sem ekki var fallist á að rafræn birting greiðsluáskorunar uppfyllti skilyrði 2. mgr. 7. gr. aðfararlaga. Ekki var fallist á að tilkynning sóknaraðila sem send var með rafrænni gagnasendingarþjónustu teldist vera ábyrgðarbréf, enda væri þjónustuveitandinn ekki póstrekandi í skilningi laga um póstþjónustu. Þá var ekki fallist á að lagabreytingar sem gerðar hafa verið í átt að aukinni rafrænni stjórnsýslu skyldu leiða til þess að greiðsluáskorun sóknaraðili teldist birt í skilningi aðfararlaga, enda hafi þeim ekki verið breytt að þessu leyti og stefnubirtingar, líkt og ákvæðið vísar til, sérstaklega undanskilið í framangreindum lagabreytingum. Loks var ekki fallist á að beita mætti lögjöfnun um tilvikið, enda væri það ekki ólögmælt.