Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 97. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 14. maí 2021

603/2019

Ákæruvaldið (Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari) gegn X (Bjarni Hauksson lögmaður, Valgeir Pálsson lögmaður) (Erlendur Þór Gunnarsson réttargæslumaður)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

X var sakfelldur fyrir brot gegn 219. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og ýmsum ákvæðum umferðarlaga nr. 50/1987 með því að hafa ekið bifreið án nægjanlegrar aðgæslu og varúðar og án þess að virða umferðarforgang gangandi vegfaranda á gangbraut þar sem umferð er stjórnað með umferðarljósum og þannig ekið á A, sem var gangandi á gangbrautinni með nánar tilgreindum afleiðingum. Var refsing X ákveðin fangelsi í 30 daga en fullnustu refsingarinnar var frestað skilorðsbundið í tvö ár. Þá var X sýknaður af kröfu A um miskabætur þar sem ekki var talið að um stórfellt gáleysi hafi verið að ræða í skilningi a-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 22. ágúst 2016

E-420/2015

M (Agnar Þór Guðmundsson hdl) gegn Draupni Gestssyni (Snorri Sturluson hdl) og Vátryggingafélagi og Íslands hf. (Heiðar Örn Stefánsson hrl)

Stefndu dæmdir til að greiða stefnanda miskabætur skv. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993 vegna líkamstjóns sem stefnandi varð fyrir í umferðarslysi þar sem sannað var að ökumaðurinn hafði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi.