Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal fulltrúi)
gegn
Hafþóri Rúnari Benediktssyni (
Hlöðver Kjartansson hrl)
H var dæmdur til greiðslu sektar fyrir umferðarlagabrot.
Ákæruvaldið (Agnes Björk Blöndal fulltrúi) gegn
X
Sakfellt fyrir umferðarlagabrot.
Karlmaður sýknaður af broti gegn umferðarlögum er varðaði búnað bifreiðar sem hann ók og flutti lifandi sauðfé.
Ákæruvaldið (
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður)
gegn
Eðvaldi Orra Guðmundssyni og svofelldur (
Brynjar Níelsson hrl)
Sakfellt fyrir gáleysislegan akstur. Ökuréttarsvipting.
K var sýknaður af ákæru um líkamsmeiðingar af gáleysi en sakfelldur fyrir brot á umferðarlögum með því að vera með fleiri farþega en sæti voru fyrir í bifreið hans, en bifreiðin fór útaf vegi í miklu hvassviðri á Hellisheiði eystri og farþeginn J slasaðist lífshættulega.
Ákært fyrir að flytja malarfarm svo að hlassið náði upp fyrir skjólborð bifreiðarinnar og án yfirbreiðslu. Sýknað fyrir að kúfur á hlassinu hafi náð upp fyrir skjólborð en sakfellt fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir að það fyki úr farminum. Þá var ákært fyrir að flytja malarfarm tveim dögum síðan án yfirbreiðslu og án þess að koma í veg fyrir að farmurinn gæti hrunið aftan af bifreiðinni. Var sakfellt fyrir þá háttsemi.
Ákært fyrir að aka vöruflutningabifreið með malarfarm án yfirbreiðslu og að flytja hrossaskít of hlaðinn. Ákærði sýknaður af því að hætta hafi stafað af malarfarmi hans en sakfelldur fyrir að flytja hrossaskítinn svo að það lak úr honum á veginn við flutning. Sakarkostnaði var skipt.
Áritað sektarboð vegna umferðarlagabrots tekið upp og var flutt munnlega. Ákærða var gefið að sök að hafa ekki yfirbreiðslu yfir malarfarmi sínum við akstur í miklu roki. Ákærði var sýknaður þar sem ekki var talið að lögfull sönnun hefði verið fram komin um að fokið hefði af farmi ákærða en myndband úr upptökubúnaði lögreglu sýndi ekki fok og lögreglumaður á vettvangi skoðaði ekki farm ákærða og greindi ákærða og lögreglumanninn á um hverskonar farm ákærði flutti í umrætt sinn. Sakarkostnaður var lagður á ríkissjóð.
Ákæruvaldið (
Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari)
gegn
Borgari Þór Þórissyni (
Guðmundur Ágústsson hdl)
B var ákærður fyrir manndráp af gáleysi og umferðarlagabrot með því að hafa ekið of hratt og án nægilegrar aðgæslu í mikilli hálku á vegarkafla vestur Ólafsvíkurveg í beygju við Skógarnesafleggjarann, með sex farþega í bifreið, sem gerð var fyrir fjóra farþega, og voru tveir ungir drengir í pallhýsi bifreiðarinnar. B hafði misst vald á bifreiðinni, sem fór út af veginum og valt með þeim afleiðingum, að pallhýsið losnaði og drengirnir köstuðust af bifreiðinni og lést annar þeirra. Fallist var á það með héraðsdómi, að B hefði sýnt af sér vítavert gáleysi með því að flytja drengina á palli bifreiðarinnar án nokkurs öryggisbúnaðar. Athæfið gerði auknar kröfur til B um ítrustu varkárni á akstri og taldi Hæstiréttur að meta yrði atvik og afleiðingar með sérstöku tilliti til þess. Talið var sannað, að B hefði ekið of hratt og ekki sýnt næga aðgæslu, sérstaklega með hliðsjón af ástandi vegarins og farþegunum á palli bifreiðarinnar. Var B sakfelldur fyrir brot gegn 215. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og 1. mgr. 4. gr., 2. mgr. 73. gr., 1. mgr. og c- og h- liðum 2. mgr. 36. gr., sbr. 1. mgr. 100., gr. umferðarlaga nr. 50/1987, og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi, auk ökuréttarsviptingar í eitt ár. Það var talinn alvarlegur annmarki á rannsókn málsins, að lögregla hafði ekki látið skoða bifreið B sérstaklega eftir slysið.