Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 5. gr. a laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 9. desember 2010

88/2010

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir vararíkissaksóknari) gegn X (Hróbjartur Jónatansson hrl)

X var ákærður fyrir brot gegn 1. mgr. 106. gr. og 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, með því að hafa ekki sinnt fyrirmælum lögreglu um að ræða við sig, hafa sest upp í bifreið sína og ekið ógætilega í átt að lögreglumanni. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að ákvörðun lögreglumannanna fjögurra, um að fara til heimilis ákærða umrætt sinn, hefði ekki staðið í tengslum við rannsókn tiltekins brots eða það að grunur hefði beinst að ákærða um refsiverða háttsemi. Yrði hvorki talið sannað að lögreglumennirnir hefðu gert grein fyrir sér í samræmi við ákvæði reglugerðar um lögregluskilríki áður en ákærði lokaði bifreið sinni og ók af stað, né heldur að ákærði hefði mátt sjá lögregluskilríki þeirra vegna myrkurs og fjarlægðar. Var ákærði því sýknaður af ákæru um brot á 1. mgr. 106. gr. almennra hegningarlaga. Þá segir einnig í dómi Hæstaréttar að þótt lagt yrði til grundvallar að ákærði hefði ekið hratt af stað og að atvik málsins hefðu orðið á litlu svæði yrði, eins og ákært var í málinu, ekki talið sannað að hann hefði haft ásetning til brots í ljósi þess að lögreglumaðurinn hefði líklegast hlaupið fyrir bifreiðina er hún var komin af stað. Yrði ákærði því einnig sýknaður af ákæru um brot á 4. mgr. 220. gr. almennra hegningarlaga. Hins vegar taldi Hæstiréttur að X hefði brotið gegn 1. mgr. 5. gr. a umferðarlaga nr. 50/1987, með því að hafa ekið yfir autt svæði á milli bílastæða við heimili ákærða og nærliggjandi akbrautar. Var ákærða gert að greiða 5.000 krónur í sekt til ríkissjóðs.

Héraðsdómur Suðurlands birt 23. október 2006

S-352/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson ftr) gegn Jóhannesi Geir Sigurjónssyni (Marteinn Másson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður dæmdur fyrir of hraðan akstur á vistgötu og lagningu bifreiðar þar sem óheimilt var að leggja en sýknaður af því að hafa ekki haft á sér ökuskírteini þar sem ósannað var gegn fullyrðingu hans að kunningi hans hafi haft skírteinið hans á sér sem var með honum.