Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 53. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Landsréttur birt 29. nóvember 2019

220/2019

A (Sveinn Andri Sveinsson lögmaður, Guðmundur Njáll Guðmundsson lögmaður, 1. prófmál) gegn íslenska ríkinu (Einar Karl Hallvarðsson lögmaður)

A höfðaði mál gegn Í og krafðist skaðabóta í kjölfar aðgerða lögreglu þegar hann var handtekinn og sviptur ökuréttindum til bráðabirgða. Í kjölfar sviptingarinnar var A vikið tímabundið úr starfi sínu sem ökumaður hópbifreiða á meðan málið væri til rannsóknar en málið var síðar fellt niður hjá lögreglu og bráðabirgðasviptingin felld úr gildi. Í dómi Landsréttar var vísað til þess að A hefði starfað við akstur fólksflutningabifreiða í umrætt sinn og fíkniefnapróf sem tekið hefði verið af honum á vettvangi hefði gefið jákvæða niðurstöðu. Því hefði lögreglustjóri haft réttmæta ástæðu til að ætla að skilyrði ökuréttarsviptingar væru fyrir hendi, sbr. 103. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Þá var ekki talið að aðgerðir lögreglu hefðu falið í sér ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu A, sem virða bæri honum til miskabóta á grundvelli b-liðar 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Var Í því sýknað af kröfu A.

Hæstiréttur birt 27. október 2016

669/2015

Ákæruvaldið (Daði Kristjánsson saksóknari) gegn Frey Frímannssyni (Hjalti Steinþórsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

F var sakfelldur fyrir umferðarlagabrot með því að hafa tvisvar sinnum ekið bifreið án ökuréttinda og í annað skiptið undir áhrifum áfengis. Að virtum sakaferli F og með hliðsjón af 77. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 var refsing hans ákveðin fangelsi í 9 mánuði auk þess sem ævilöng ökuréttarsvipting hans var áréttuð.

Héraðsdómur Austurlands birt 1. október 2009

S-48/2009

Ákæruvaldið (Helgi Jensson sýslumannsfulltrúi, Birna Kristín Einarsdóttir sýslumannsfulltrúi) gegn Agnesi Ósk Þorgrímsdóttur (Bjarni Guðmundur Björgvinsson hdl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

A var sakfelld fyrir að hafa í tvígang ekið svipt ökurétti og að hafa í bæði skiptin í blekkingarskyni framvísað ökuskírteini þrátt fyrir að vera svipt ökuréttindum. Þá var hún sakfelld fyrir að hafa ekið undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Var A dæmd til að greiða sekt og var svipt ökurétti.