Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 45. gr. a laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákærðu sakfelldir fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.
J var sakfelldur fyrir líkamsárás með því að hafa haldið A niðri á meðan X sparkaði í andlit hans. Var háttsemin talin varða við 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga. Var refsing J ákveðin sem hegningarauki við 4 mánaða skilorðsbundna fangelsisrefsingu samkvæmt héraðsdómi sem fallið hafði eftir uppkvaðningu hins áfrýjaða dóms, en í hinum fyrrgreinda dómi var 3 mánaða skilorðsbundin fangelsisrefsing J samkvæmt öðrum dómi tekin upp og dæmd með. Með vísan til 60. og 77. gr. almennra hegningarlaga var refsing J hæfilega ákveðin fangelsi í 8 mánuði og var þá kveðið á um hana í einu lagi fyrir framangreinda háttsemi og samkvæmt héraðsdómunum tveimur. Var fullnustu refsingarinnar frestað og hún bundin skilorði. Þá var ákvæði héraðsdóms um greiðslu bóta til A staðfest.
Ákæruvaldið (
Gunnar Örn Jónsson fulltrúi)
gegn
Knúti Trausta Hjálmarssyni (
Guðmundur Ágústsson hrl)
Karlmaður sakfelldur fyrir hótanir og umferðarlagabrot en ekki gerð sérstök refsing þar sem um hegningarauka á samtals 14 mánaða fangelsisrefsingu var að ræða. Ævilöng ökuréttarsvipting áréttuð.