Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 40. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem felld var úr gildi ákvörðun sýslumanns um að krafa T um kyrrsetningu á eignum X næði fram að ganga.
Ákvörðun sýslumanns um kyrrsetningu var felld úr gildi þar sem ekki væri að finna í tilvitnuðu lagaákvæði 6. mgr. 113. gr. laga um tekjuskatt kyrrsetningarheimild vegna meintra brota á lögum um virðisaukaskatt.
H var sakfelldur fyrir brot gegn 1. mgr. 40. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt og 1. mgr. 107. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt. Kröfu hans um að lækka bæri vangoldinn virðisaukaskatt og tekjuskattstofn var hafnað þar sem hann hafði ekki lagt fram nein gögn því til stuðnings að hann hafi haft tiltekinn kostnað af sölu bifreiðanna sem um ræddi og minni tekjur af sölu þriggja þeirra. Með játningu H var jafnframt sannað að hann hefði gerst sekur um hafa látið undir höfuð leggjast að halda tilskilið bókhald vegna tilgreindrar starfsemi í samræmi við það sem lög áskilja og gera ársreikninga vegna hennar. Brotastarfsemin var talin samfelld og brotin því ófyrnd. Brot H voru stórfelld og vörðuðu verulegar fjárhæðir. Hins vegar hafði nokkur dráttur orðið á rannsókn málsins og H ekki sætt refsingu, sem hér skipti máli. Var refsing hans ákveðin fangelsi í sex mánuði, en fullnustu refsingarinnar frestað skilorðsbundið. Jafnframt var H dæmdur til að greiða sekt í ríkissjóð, 9.000.000 krónur.