Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 4. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Hæstiréttur birt 18. janúar 2007

104/2006

Arnar Pedersen (Guðmundur Birgir Ólafsson hrl) gegn Sjóvá-Almennum tryggingum hf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl)
Málaflokkur: Vátryggingaréttur

A krafðist greiðslu vátryggingabóta úr húftryggingu bifreiðar sinnar hjá vátryggingafélaginu S. A hafði lánað öðrum manni bifreiðina og stórskemmdist hún í árekstri á Laugavegi í Reykjavík. Í málinu var deilt um hvort ökumaður bifreiðarinnar hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi umrætt sinn í skilningi greinar 2.6 í vátryggingarskilmálum húftryggingarinnar og hvort það ætti að leiða til brottfalls bótaréttar. Í dómi Hæstaréttar var talið að þegar akstursmáti ökumannsins og aðkoma á slysstað væri virt þætti sannað að hann hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi við aksturinn í skilningi nefnds ákvæðis í vátryggingarskilmálunum. Samkvæmt beinu orðalagi ákvæðisins undanþægi það vátryggingafélagið bótaábyrgð þegar svona stæði á. Ekki var fallist á með A að víkja bæri ákvæðinu til hliðar með vísan til 20. gr. laga nr. 20/1954 um vátryggingarsamninga þegar svo stæði á að ökumaður væri annar maður en eigandi ökutækis. Ekki var heldur fallist á að 18. gr. laganna hefði þýðingu um þetta atriði. Var sýknukrafa S því tekin til greina.

Hæstiréttur birt 18. júní 2004

12/2004

Sjóvá-Almennar tryggingar hf (Ingvar Sveinbjörnsson hrl) gegn Tryggingamiðstöðinni hf og Ólafi Elíasi Ólafssyni (Guðmundur Pétursson hrl)
Lykilorð: Bifreið. Skaðabætur.

Deilt var um sakarskiptingu vegna árekstrar bifreiðanna Y og P. Á grundvelli þess sem fyrir lá í málinu, og eins og sönnunarstöðu var háttað, varð að miða við að bifreiðin P hefði verið komin það nærri stöðvunarlínu við umrædd gatnamót að ökumanni hennar hafi ekki borið að stöðva bifreiðina er gult ljós kviknaði á götuvita, heldur hafi hún mátt halda áfram för í samræmi við síðari hluta 5. mgr. 34. gr. reglugerðar nr. 289/1995 um umferðarmerki og notkun þeirra. Ökumanni Y hafi því eins og hér stóð á, borið að veita P forgang í samræmi við 6. mgr. 25. gr. laga nr. 50/1987.