Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 22. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Á krafðist skaðabóta úr hendi S hf. og Í vegna tjóns sem hann varð fyrir í árekstri á Reykjanesbraut 23. maí 2008 milli jeppabifreiðar Á og fólksflutningabifreiðar sem báðum var ekið í suðurátt. Þegar áreksturinn varð hafði ökumaður fólksflutningabifreiðarinnar beygt út á vinstri akrein með það fyrir augum að aka fram úr jeppabifreiðinni, en á sama tíma beygði ökumaður jeppabifreiðarinnar henni inn á vinstri akrein þar sem hann hugðist aka inn á Nickel-svæðisveginn. Í héraði voru S hf. og Í taldir bera bótaábyrgð á helmingi tjóns Á. Í dómi Hæstaréttar segir meðal annars að á þeim stað þar sem ökumaður fólksflutningabifreiðarinnar ákvað að aka fram úr jeppabifreiðinni var vegurinn merktur hálfbrotinni línu auk þess sem þar voru gatnamót. Ríkar kröfur hvíldu því á ökumanni fólksflutningabifreiðarinnar og bar honum að fullvissa sig um að skilyrðum væri örugglega fullnægt svo að aka mætti fram úr á eða við vegamót. Var héraðsdómur því staðfestur.
Stefnandi krafðist viðurkenningar á því að stefndu væru skaðabótaskyldir vegna tjóns er varð af árekstri tveggja bifreiða. Talið var að stefndu bæru skaðabótaábyrgð á helmingi tjónsins.