Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 106. gr. a laga nr. 50/1987 — Umferðarlög
Ákæruvaldið (
Agnes Björk Blöndal fulltrúi)
gegn
Mikael Má Unnarssyni (
Ingvar Þóroddsson lögmaður)
Ákærði sakfelldur fyrir fjársvik og umferðarlagabrot. Dæmdur í 60 daga skilorðsbundið fangelsi, til greiðslu sektar og skaðabóta.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum (enginn) gegn
Axel Jóhanni Helgasyni (
Jón Hauksson hdl)
Með 8. gr. laga nr. 69/2007 sem tók gildi 27. apríl 2007 var 106. gr. a. bætt við umferðarlög nr. 50/1987, og kveður greinin á um heimild til að beita akstursbanni gegn byrjanda sem nýtur ökuréttar á grundvelli bráðabirgðaskírteinis, en með slíku banni töldust ökuréttindi viðkomandi afturkölluð. A hafði við gildistöku nefndra laga hlotið þrjá punkta í ökuferilsskrá sína, en hlaut þann fjórða 29. ágúst 2007. Í tilefni af þessu beitti L framangreindri heimild, en A bar þá ákvörðun undir héraðsdóm. Talið var að í nefndri lagabreytingu hafi falist þynging ítrekunaráhrifa fyrri brota A og að skilyrði og áhrif ítrekunar samkvæmt nefndu lagaákvæði hafi verið skýr og efni þess bæði aðgengilegt og fyrirsjáanlegt þannig að A hefði átt að geta séð fyrir hverjar afleiðingar umferðarlagabrot hans 29. ágúst 2007 hefði að lögum fyrir hann. Var því ekki fallist á með A að með fyrrgreindri ákvörðun hefði refsiheimild verið beitt með afturvirkum hætti og var kröfu hans um að ákvörðunin yrði felld úr gildi því hafnað.