Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

4 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 102. gr. laga nr. 50/1987 — Umferðarlög

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 9. maí 2025

E-7532/2023

A (Gunnar Gíslason lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Þorvaldur Hauksson lögmaður)

Lögregla stöðvaði stefnanda við reglubundið umferðareftirlit skv. umferðarlögum þar eð hann ók á ofsahraða. Fallist var á það að mál á hendur stefnanda hefði verið fellt niður í skilningi 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þegar fíkniefnapróf sýndi að ekki mældust fíkniefni í þvagi hans. Einnig var fallist á að þegar stefnandi fylgdi lögreglunni á lögreglustöð til þess að gefa sýni vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna hefði hann verið handtekinn í skilningi 1. mgr. 90. gr. laga nr. 88/2008, sbr. dóm Landsréttar í máli nr. 363/2024. Það var einnig skilgreint sem líkamsrannsókn í skilningi 77. gr. sömu laga þegar stefnandi gaf lögreglu þvagsýni. Því var hins vegar hafnað að bifreið stefnanda hefði verið haldlögð enda voru ökuréttindi hans runnin út þegar lögregla stöðvaði hann. Stefnanda voru dæmdar miskabætur.

Landsréttur birt 12. desember 2024

363/2024

Íslenska ríkið (Þorvaldur Hauksson lögmaður) gegn A (Leó Daðason lögmaður)

A var stöðvaður af lögreglu við akstur bifreiðar 15. nóvember 2018. Í lögregluskýrslu kom fram að grunur hefði vaknað um akstur undir áhrifum fíkniefna og var A handtekinn og færður á lögreglustöð. A var gert að sæta blóð- og þvagrannsókn og greindist umbrotsefni THC sem er í kannabis í þvagi hans. Seinna var rannsókn á máli A hætt. Höfðaði A málið til heimtu bóta vegna þvingunaraðgerða sem hann hafði verið beittur, bæði handtöku og líkamsrannsókn. Í dómi Landsréttar var rakið að með hliðsjón af 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar stæðu efnisrök til að beita bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála með lögjöfnun um handtöku A og jafnframt stæðu efnisrök til að beita bótareglunni og þá blóð- og þvagrannsókn sem A varð að sæta meðan hann var sviptur frelsi á grundvelli 2. mgr. 47. gr. umferðarlaga nr. 50/1987. Landsréttur vísaði til þess að skilyrðum 1. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 fyrir bótaábyrgð Í væri fullnægt. Aftur á móti komst Landsréttur að þeirri niðurstöðu að A hefði valdið eða stuðlað sjálfur að þeim aðgerðum lögreglu sem hann reisti kröfu sína á. Samkvæmt niðurlagi 2. mgr. 246. gr. laga nr. 88/2008 þótti rétt að fella að öllu leyti niður bætur til A. Var því fallist á kröfu Í um sýknu af kröfu A.

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2007

513/2006

Ákæruvaldið (Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari) gegn Jóel Mar Hólmfríðarsyni (Logi Guðbrandsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

J var sakfelldur fyrir að aka bifreið sviptur ökuréttindum og undir áhrifum áfengis. Hann hafði áður verið sakfelldur fyrir ölvunarakstursbrot en var ekki orðinn fullra 18 ára þegar hann framdi það brot. Með vísan til dómvenju var refsing J ákveðin sekt 190.000 krónur. Þá fór um ökuréttarsviptingu J eftir þágildandi 2. mgr. 102. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 en ekki 4. mgr. greinarinnar þar sem fyrra ölvunarakstursbrot J hafði ekki ítrekunaráhrif vegna aldurs hans, sbr. 71. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Var J sviptur ökurétti í eitt ár frá birtingu héraðsdóms að telja.

Héraðsdómur Suðurlands birt 8. janúar 2007

S-290/2006

Ákæruvaldið (Gunnar Örn Jónsson fulltrúi) gegn Stefáni Hilmi Stefánssyni (Guðjón Ægir Sigurjónsson hrl)
Málaflokkur: Umferðarlagabrot

Karlmaður fundinn sekur um ölvunarakstur og að aka án þess að hafa gild ökuréttindi, þrátt fyrir neitun og staðfestingu vitnis um að það hefði startað bifreiðinni með skrúfjárni án vitneskju ökumanns, þar sem tveir lögreglumenn staðfestu að þeir hefðu séð bifreiðina bakka í um það bil 1-2 metra með aðalljós, bakkljós og afturljós tendruð auk þess að sjá reyk úr púströri bifreiðarinnnar og sviptur ökurétti í eitt ár og til að greiða 135.000 króna sekt til ríkissjóð og sakarkostnað.