Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 63. gr. laga nr. 49/2005 — Lög um fullnustu refsinga

Landsréttur birt 30. október 2020

404/2019

Íslenska ríkið (Guðrún Sesselja Arnardóttir lögmaður) gegn A (Bragi Dór Hafþórsson lögmaður)

A krafði Í um miskabætur og bætur vegna tekjutaps vegna frelsissviptingar sem hann sætti í tengslum við ætlaða líkamsárás og frelsissviptingu. A var sýknaður af sakargiftum með endanlegum dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Frelsissvipting A var tvíþætt, annars vegar í formi handtöku og gæsluvarðhalds og hins vegar í formi afplánunar eftirstöðva fangelsisdóms. Í dómi Landsréttar kom fram að A hefði ekki sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tekjutapi vegna frelsissviptingarinnar. Á hinn bóginn taldi Landsréttur að A ætti rétt til miskabóta samkvæmt hinni hlutlægu bótareglu 246. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála vegna handtöku hans og gæsluvarðhalds frá 6. til 18. júlí 2014. Þann dag var A með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur gert að afplána 600 daga eftirstöðvar fangelsisrefsingar. Landsréttur taldi þá frelsissviptingu ekki hafa verið að ósekju. Gæti A því hvorki byggt bótarétt sinn vegna hennar á 5. mgr. 67. gr. stjórnarskrárinnar5. mgr. 5. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Aftur á móti hefði orðið óhæfilegur dráttur á útgáfu ákæru hjá ríkissaksóknara en frá því að embættið fékk rannsóknargögnin send og þar til ákæra var gefin út liðu um 15 mánuðir. Ekki var að neinu leyti við A að sakast um þann drátt. Var talið að eins og á stóð hefðu tafir umfram 120 daga á útgáfu ákæru verið svo úr hófi að í því hafi falist saknæmt og ólögmætt brot gegn frelsi A, sbr. b-lið 1. mgr. 26. gr. skaðabótalaga nr. 50/1993. Við mat á því hvort orsakatengsl væru á milli framangreinds dráttar á útgáfu ákæru og þess að A var gert að afplána eftirstöðvar refsingar samkvæmt eldri dómi var litið til þess að afplánun A meðan á lögreglurannsókn stóð og sá tími sem meðferð málsins tók fyrir dómi væru ekki afleiðing framangreinds dráttar. Jafnframt hefði A afþakkað reynslulausn einum mánuði áður en afplánun átti að ljúka. Samkvæmt öllu framangreindu var Í gert að greiða A 1.800.000 krónur í miskabætur vegna handtöku, gæsluvarðhalds og óhæfilegra tafa á útgáfu ákæru.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. desember 2011

S-1532/2011

Ákæruvaldið (Fanney Björk Frostadóttir fulltrúi) gegn Guðmundi Friðrik Stefánssyni (Stefán Karl Kristjánsson hdl)
Lykilorð: Líkamsárás.
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Ákærði sakfelldur fyrir líkamsárás. Refsing fangelsi í 8 mánuði.