Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
4 dómar fundust
Lagagrein: 10. gr. laga nr. 49/2005 — Lög um fullnustu refsinga
Stefndi, íslenska ríkið, var dæmt til að greiða stefnanda bætur vegna handtöku með vísan til b liðar 176. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.
Úrskurður héraðsdóms um að X skyldi sæta gæsluvarðhaldi á grundvelli 2. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála var staðfestur.
Staðfestur var úrskurður héraðsdóms um að X sætti gæsluvarðhaldi á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála meðan mál hans væri til meðferðar fyrir æðri dómi.
Talið var að ekki væri lagaheimild til áframhaldandi gæsluvarðhaldsvistar X á grundvelli c. liðar 1. mgr. 103. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála þar sem fyrir lá að X átti óafplánaða refsingu samkvæmt fullnustuhæfum dómi. Átti því samkvæmt 3. mgr. 10. gr. laga nr. 49/2005 um fullnustu refsinga að láta hann þegar hefja afplánun. Var úrskurður héraðsdóms um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir X því felldur úr gildi.