Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
1 dómar fundust
Lagagrein: 2. mgr. 91. gr. laga nr. 45/1998 — Sveitarstjórnarlög
Aðalsteinn Jónsson, Baldur Grétarsson, Anna Birna Snæþórsdóttir, Kristbjörg Ragnarsdóttir, Jóna S. Ágústsdóttir, Birgir Þór Ásgeirsson, Vilhjálmur Vernharðsson, Emil J. Árnason, Stefán Geirsson, Sigurður J. Stefánsson, Helga Valgeirsdóttir og Eysteinn Geirsson (
Hróbjartur Jónatansson hrl)
gegn
Norður-Héraði (
Logi Guðbrandsson hrl)
Kærumál. Sveitarstjórn. Stjórnvaldsúrskurður. Stjórnarskrá. Aðild. Lögvarðir hagsmunir. Kæruaðild. Frávísunarúrskurður staðfestur að hluta. A o.fl. kröfðust þess annars vegar að ógilt yrði ákvörðun sveitarstjórnar Norður-Héraðs um sameiningu sveitarfélagsins við Austur-Hérað og Fellahrepp og hins vegar að ógiltur yrði úrskurður félagsmálaráðuneytisins um staðfestingu á umræddri ákvörðun sveitarstjórnarinnar. Í Hæstarétti var talið að þar sem fyrri krafan varðaði eingöngu gildi ákvörðunar sveitarstjórnarinnar um sameiningu á grundvelli 2. mgr. 91. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 yrði heimild A o.fl. til aðildar að dómsmálinu ekki rýmri en leiddi af almennum reglum. Var talið að A o.fl. hefðu ekki lögvarða hagsmuni af þessari kröfu sinni samkvæmt 25. gr. laga nr. 91/1991 svo sem ákvæðið hefur verið skýrt í dómaframkvæmd og var henni því vísað frá héraðsdómi. Varðandi síðari kröfuna var með vísan til 60. gr. stjórnarskrárinnar talið að þeir átta sóknaraðilar sem höfðu kært umrædda ákvörðun til félagsmálaráðuneytisins ættu lögvarða hagsmuni til að fá úrlausn dómstóla um hana en kröfu þeirra fjögurra sóknaraðila, sem áttu ekki aðild að málskoti til félagsmálaráðuneytisins, varð hins vegar vísað frá héraðsdómi. Þá var ekki talið að það stæði því í vegi að leyst yrði úr síðari kröfu sóknaraðilanna átta að fjórir menn sem stóðu að umræddu málskoti ættu ekki aðild að málinu.