Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 32. gr. laga nr. 44/1999 — Lög um náttúruvernd
Landeigendafélag Reykjahlíðar ehf (
Jónas A. Aðalsteinsson hrl)
gegn
Daða Lange Friðrikssyni, Finni Baldurssyni, Finni Sigfúsi Illugasyni, Héðni Sverrissyni, Reynihlíð hf og Sólveigu Illugadóttur (
Hjördís Halldórsdóttir hrl)
Í málinu kröfðust D o.fl. þess að L ehf. væri óheimilt að innheimta gjald fyrir aðgang að Hverum við Námafjall og Leirhnjúk í landi Reykjahlíðar í Skútustaðahreppi. Reistu þau kröfu sína einkum á því að samþykki allra sameigenda að jörðinni þyrfti til gjaldtökunnar, en fyrir lá að D o.fl. ættu tæp 30% hlut í jörðinni sem var að mestum hluta í óskiptri sameign eigenda hennar. Með hliðsjón af samþykktum L ehf. og tilgangi þess var ekki talið að sameigendur jarðarinnar hefðu afsalað til félagsins rétti til þess að taka ákvarðanir um sameignina sem teldust meiriháttar eða óvenjulegar, enda hefði þurft að orða slíkt afsal með ótvíræðum hætti. Þá var ekki fallist á með L ehf. að eigendur jarðarinnar hefðu samþykkt gjaldtökuna á vettvangi félagsins. Ákvörðun um að hefja gjaldtöku af ferðamönnum og mynda þannig tekjur af sameigninni hefði falið í sér breytingu á nýtingu hennar sem væri meiriháttar. Samkvæmt reglum um sérstaka sameign þyrfti til hennar ótvírætt samþykki allra sameigenda og nægði því ekki það hlutfall atkvæða sem hafði samþykkt tillögu stjórnar L ehf. á hluthafafundi árið 2014. Ákvörðun um gjaldtökuna hefði samkvæmt framansögðu ekki mátt taka á vettvangi L ehf. og var hún þess vegna talin ógild frá upphafi. Voru því ákvæði um málshöfðunarfrest í 2. mgr. 71. gr. laga nr. 138/1994 um einkahlutafélög ekki talin eiga við. Að öllu þessu gættu var fallist á með D o.fl. að umrædd gjaldtaka hefði verið ólögmæt. Loks var einnig staðfest lögbann sem hafði verið lagt á gjaldtöku L ehf.
Finnur Sigfús Illugason, Sólveig Illugadóttir, dánarbú Jóns Illugasonar, Reynihlíð hf, Finnur Baldursson, Daði Lange Friðriksson og Héðinn Sverrisson (
Hjördís Halldórsdóttir hrl)
gegn
Landeigendum Reykjahlíðar ehf (
Jónas A. Aðalsteinsson hrl)
Staðfesting lögbanns.