Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 30. gr. laga nr. 41/1992 — Lög um brunavarnir og brunamál
M ehf. krafði R um endurgreiðslu bílastæðagjalds sem félagið hafði greitt R vegna fyrirhugaðra framkvæmda á tiltekinni lóð, þar sem fallist hefði verið á minnkun framkvæmda á lóðinni. Í dómi Hæstaréttar sagði annars að með dómi Hæstaréttar í kærumáli milli sömu aðila hefði því verið slegið föstu að endurgreiðslukrafa sú sem um ræddi í málinu hefði ekki stofnast fyrr en við útgáfu byggingarleyfis 24. nóvember 2010. Hefði krafan því ekki gjaldfallið fyrr en eftir að eignarumráðum M ehf. yfir fasteigninni lauk með nauðungarsölu sem fór fram 2. september 2010. Staðfesti Hæstiréttur því niðurstöðu héraðsdóms um sýknu R á grundvelli aðildarskorts M ehf.
Stefndi sýknaður af aðalkröfu stefnanda um endurgreiðslu bílastæðagjalda á grundvelli aðildarskorts. Varakröfu stefnanda um skaðabætur var vísað frá dómi af sjálfsdáðum.