Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 50. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 29. apríl 1999

293/1998

Upphaf ehf (Árni Pálsson hrl) gegn Jóni Hjaltasyni og Halldóri Þór Wium Kristinssyni (Þorsteinn Hjaltason hdl)

Félagið U tók að sér að prenta rit, sem í var fjöldi mynda, fyrir J og H. Áður hafði félagið P skannað myndirnar í tölvutækt form og þurfti það að vinna verkið að nýju vegna lélegra gæða. Þegar að lokinni prentun lýstu J og H óánægju með verk U og nokkru síðar lýstu þeir riftun á samningi sínum við U. Þá hafði J innt af hendi greiðslu upp í verklaunin og U hafði afhent J og H 900 af 1000 eintökum af bókinni. Krafði U J og H um greiðslu eftirstöðva verklaunanna, en J og H töldu sig eiga kröfu um vangildisbætur á hendur U. Dómkvaddir matsmenn töldu ástæður fyrir lélegum gæðum mynda í bókinni mega rekja til þess að þær hefðu hvorki verið nógu vel skannaðar né prentaðar. J og H höfðu ekki eftirlit með því hvort P leysti verk sitt af hendi með fullnægjandi hætti og því var talið að þeir hefðu ekki gætt þeirrar varúðar, sem almennt má ætlast til af verkkaupa, um að fylgjast með efndum af hálfu verktaka sinna. Þá var talið að U hefði borið að stöðva verkið og gera J og H viðvart þegar ljóst var hvernig tekist hefði til við að skanna myndirnar í síðara skiptið. Þá var jafnframt lögð til grundvallar niðurstaða dómkvaddra matsmanna um að verk U hefði verið gallað. Talið var að J og H hefði verið óheimilt að rifta verksamningi við U, en talið var að þeir gætu krafist afsláttar af verklaunum og var hæfilegur afsláttur talinn 25%. Var J og H því gert að greiða U eftirstöðvar verklaunanna með afslætti.