Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 28. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 1. mars 2001

359/2000

Sæmundur Þórðarson, Anne May Sæmundsdóttir, Þórður Jón Sæmundsson, Siv E. Sæmundsdóttir, Geirlaug Þorvaldsdóttir, Katrín Þorvaldsdóttir, Skúli Þorvaldsson og Vatnsleysa sf (Valgarður Sigurðsson hrl) gegn Laxalind ehf (Bjarni Þór Óskarsson hrl)

A krafði Í um bætur vegna fjárhagslegs og ófjárhagslegs tjóns sem hann taldi sig hafa orðið fyrir. Opinbert mál hafði verið höfðað gegn A vegna gruns um að hann hefði dregið sér fé en hann verið sýknaður. Taldi A að Í hefði bakað sér tjón með rannsóknaraðgerðum lögreglu og málsmeðferð í sakamálinu sem hefði verið höfðað án nægjanlegs tilefnis. Fallist var á að Í hefði ekki fært fram viðhlítandi rök fyrir því að nauðsyn hefði borið til að halda A í gæslu í rúmar tvær klukkustundir á rannsóknarstigi hins opinbera máls. Þá var fallist á að ekki hefði verið ástæða til að endurtaka leit á heimili A og í sameign fjöleignarhúss, sem hann bjó í. Voru honum dæmdar miskabætur vegna þessa. Þá var fallist á að A bæru skaðabætur vegna skyrtu sem lögregla hafði lagt hald á við rannsókn málsins en ekki skilað. Hins vegar var hafnað að ákvæði XXI. kafla laga nr. 19/1991 fælu í sér heimild til að dæma bætur vegna þess að A hefði verið sóttur til sakar án nægjanlegs tilefnis. Þótti ekki sýnt að skilyrði væru til slíkra bóta á grundvelli sakarreglunnar. Þá var hafnað kröfu A um bætur vegna mismunar á lögmannskostnaði samkvæmt gjaldskrá og tildæmdum málsvarnarlaunum í sakamálinu.