Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 17. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 27. maí 2004

486/2003

Anna Cecilia Benassi og Guðmundur Hafsteinsson (Reynir Karlsson hrl) gegn Bergljótu Sigurðardóttur, Ragnari Valssyni, Ólafi Valssyni, Sigurði Bjarnasyni, Ágústi J. Gunnarssyni, Sveinbirni S. Gunnarssyni, Habby Thompson Heymann og Jon Stuart Thompson (Björn Lárus Bergsson hrl)

Forskalað timburhús í eigu A og G reyndist vera svo undirlagt af veggjatítlu að allt tréverk þess taldist ónýtt. Kröfðust A og G skaðabóta eða afsláttar úr hendi þeirra sem selt höfðu þeim húsið. Ósannað var talið að fyrri eigendur hafi vitað um tilvist skordýranna í húsinu við sölu þess og ekki varð séð að seljendur hafi ábyrgst sérstaklega eitthvað í þessa veru. Skaðabótakröfunni var því hafnað. Þá urðu A og G að bera halla af skorti á sönnun um að húsið hafi verið haldið slíkum annmarka við sölu þess að veitt hefði þeim rétt til þess að krefjast afsláttar af kaupverði.