Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 15. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 17. janúar 2001

445/2000

Byggðaþjónustan ehf (Steingrímur Þormóðsson hrl) gegn þrotabúi Félagsprentsmiðjunnar ehf (Tómas Jónsson hrl)

Þ, þrotabú F ehf., krafðist þess að frumgögn, sem bókhald F ehf. var grundvallað á, svo og bókhaldsbækur, sem B ehf. hafði unnið upp úr því, yrðu tekin úr vörslum B ehf. og afhent Þ. Fallist var á það með B ehf. að bókhaldsgögn Þ hefðu aukist að verðmæti fyrir Þ fyrir tilverknað B ehf. Með hliðsjón af fyrirliggjandi upplýsingum var lagt til grundvallar að B ehf. hefði mátt líta svo á að Þ hefði samþykkt að greiða fyrir verk hans. Eins og til háttaði í málinu var almenn skírskotun Þ til opinberra hagsmuna ekki talin geta leitt til þess að vikið yrði til hliðar rétti B ehf. og var fallist á að hann hefði haldsrétt í bókhaldsgögnum Þ, þar sem fullnaðaruppgjör hefði ekki farið fram. Var kröfu Þ um innsetningu í allt bókhald F ehf. því synjað, sbr. 78. gr. laga nr. 90/1989.