Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 10. gr. laga nr. 39/1922 — Lög um lausafjárkaup

Hæstiréttur birt 15. mars 2001

243/2000

Kristbjörn Árnason (Kristján Þorbergsson hrl) gegn Baldri Halldórssyni (Ólafur Axelsson hrl) og Heklu hf (Karl Axelsson hrl)

K höfðaði mál á hendur B og H og krafðist skaðabóta vegna skemmda sem orðið höfðu á bátsvél sem K hafði keypt af H. B hafði tekið að sér að annast niðursetningu vélarinnar og hafði H eftirlit með því verki. Var báturinn í kjölfarið að veiðum í viku en lá eftir það óhreyfður í um eitt ár. Þegar vél bátsins var ræst að nýju veitti K því eftirtekt að smurolía vélarinnar var sérkennileg á litinn. Reyndist hún við nánari skoðun innihalda sjó og ferskvatn. Hafði vatn farið inn í ventlahús og voru strokkar vélarinnar ryðgaðir. Var vélin lýst ónýt í kjölfarið. Talið var að B, sem var vanur skipasmiður, hefði gert mistök við niðursetningu vélarinnar með því að haga afgaslögn frá túrbínu vélarinnar á annan veg en venjulegt var og eðlilegt. Var lagt til grundvallar að að þau mistök hefðu valdið því að vélin eyðilagðist. Var B látinn bera fébótaábyrgð á tjóni K. H var hins vegar sýknaður, enda var talið að ábyrgðarundanþága í sölu-, þjónustu- og ábyrgðarskilmálum hans ætti við og að sú málsástæða K væri of seint fram komin að undanþágan bryti gegn 24. gr. samkeppnislaga.

Hæstiréttur birt 13. janúar 1999

9/1999

Steinbock þjónustan ehf (Sigurður Sigurjónsson hrl) gegn Bergey ehf (enginn)

Máli B gegn S var vísað frá héraðsdómi á þeim grunni að fullnaðardómur hefði verið lagður á sakarefnið í fyrri málaferlum þeirra. Kveðið var á um að hvor aðili skyldi bera sinn kostnað af málinu. S kærði úrskurð þennan og krafðist þess að hann yrði staðfestur um annað en málskostnað, en B yrði dæmdur til að greiða sér málskostnað í héraði auk kærumálskostnaðar fyrir Hæstarétti. B lét málið ekki til sín taka fyrir Hæstarétti. Með vísan til 2. mgr. 130 gr. laga nr. 91/1991 var fallist á kröfur S.