Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 1. mgr. 8. gr. laga nr. 36/2001 — Lög um Seðlabanka Íslands
Í málinu deildu G og Í um það frá hvaða tímamarki ætti að reikna dráttarvexti á fjárhæð sem G hafði fengið endurgreidda í kjölfar niðurfellingar yfirskattanefndar á úrskurði ríkisskattstjóra um hækkun á opinberum gjöldum hans. Fjárhæðina hafði G fengið endurgreidda með dráttarvöxtum þar sem upphafstími þeirra var ákvarðaður samkvæmt 3. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og miðaður við þann dag er yfirskattanefnd bar í síðasta lagi að lögum að kveða upp úrskurð í málinu. G byggði hins vegar á því að miða ætti upphaf dráttarvaxta við þann dag er hann hafði gert kröfu um endurgreiðslu fjárhæðarinnar og vísaði í þeim efnum til 2. mgr. 2. gr. laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda. Í dómi sínum vísaði Hæstiréttur til þess að í 3. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003 væri að finna sérstaka reglu um endurgreiðslu tekjuskatts sem gengi framar ákvæðum 2. gr. laga nr. 29/1995 og stæðu því engin rök til annars en að ákvæði 3. mgr. 114. giltu um endurgreiðsluna til G. Var Í því sýknað af kröfum G.
Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 18. september 2015, og úrskurður tollstjóra, dags. 4. mars 2015, í málum stefnanda, Gunnars I. Hafsteinssonar felldir úr gildi. Dæmt að Tollstjóra beri að miða upphafstíma dráttarvaxtaútreiknings í máli stefnanda við 21. janúar 2014.