Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 8. gr. laga nr. 36/2001 — Lög um Seðlabanka Íslands

Hæstiréttur birt 19. desember 2017

617/2016

Íslenska ríkið (Eiríkur Áki Eggertsson hrl) gegn Gunnari I. Hafsteinssyni (Garðar Valdimarsson hrl)
Málaflokkur: Skattaréttur

Í málinu deildu G og Í um það frá hvaða tímamarki ætti að reikna dráttarvexti á fjárhæð sem G hafði fengið endurgreidda í kjölfar niðurfellingar yfirskattanefndar á úrskurði ríkisskattstjóra um hækkun á opinberum gjöldum hans. Fjárhæðina hafði G fengið endurgreidda með dráttarvöxtum þar sem upphafstími þeirra var ákvarðaður samkvæmt 3. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt og miðaður við þann dag er yfirskattanefnd bar í síðasta lagi að lögum að kveða upp úrskurð í málinu. G byggði hins vegar á því að miða ætti upphaf dráttarvaxta við þann dag er hann hafði gert kröfu um endurgreiðslu fjárhæðarinnar og vísaði í þeim efnum til 2. mgr. 2. gr. laga nr. 29/1995 um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda. Í dómi sínum vísaði Hæstiréttur til þess að í 3. mgr. 114. gr. laga nr. 90/2003 væri að finna sérstaka reglu um endurgreiðslu tekjuskatts sem gengi framar ákvæðum 2. gr. laga nr. 29/1995 og stæðu því engin rök til annars en að ákvæði 3. mgr. 114. giltu um endurgreiðsluna til G. Var Í því sýknað af kröfum G.

Héraðsdómur Reykjavíkur birt 13. júní 2016

E-3941/2015

Gunnar I. Hafsteinsson (Garðar Valdimarsson hrl) gegn Íslenska ríkinu (Eiríkur Áki Eggertsson hdl)

Úrskurður fjármála- og efnahagsráðuneytisins, dags. 18. september 2015, og úrskurður tollstjóra, dags. 4. mars 2015, í málum stefnanda, Gunnars I. Hafsteinssonar felldir úr gildi. Dæmt að Tollstjóra beri að miða upphafstíma dráttarvaxtaútreiknings í máli stefnanda við 21. janúar 2014.