Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lög: Lög um breytingu á lögum nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum. nr. 34/1994

Hæstiréttur birt 8. mars 2007

457/2006

Álfdís Elín Axelsdóttir og Martin Kennelly (Guðjón Ármann Jónsson hrl) gegn Ármúla 44 ehf (Björn Lárus Bergsson hrl)

Að gengnum héraðsdómi þar sem ÁL og MK voru dæmd til að greiða ÁR ehf. óskipt nánar tilgreinda fjárhæð lét ÁR ehf. gera fjárnám hjá ÁL samkvæmt dóminum. Dóminum var síðar áfrýjað af hálfu ÁL og MK og gagnáfrýjað af hálfu ÁR ehf. Fyrir Hæstarétt voru lagðar greiðslutilkynningar frá nafngreindum banka sem sýndu að MK hefði eftir fjárnámsgerðina innt af hendi í fernu lagi greiðslur til ÁR ehf. sem námu stærstum hluta hinnar dæmdu kröfu. Í tilkynningunum kom ekki fram að gerður hefði verið fyrirvari þegar greiðslurnar voru inntar af hendi. Samkvæmt fordæmum Hæstaréttar var áfrýjun málsins af hálfu ÁL og MK ekki samrýmanleg þessum greiðslum, en eftirstöðvar skuldarinnar náðu ekki áfrýjunarfjárhæð sem ákveðin var fyrir árið 2006 samkvæmt lögum um meðferð einkamála. Var kröfum ÁL og MK því vísað frá Hæstarétti. ÁR ehf. féll frá gagnáfrýjun málsins fyrir sitt leyti með yfirlýsingu við munnlegan flutning málsins fyrir Hæstarétti.