Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

6 dómar fundust

Lagagrein: 10. gr. laga nr. 33/2003 — Lög um verðbréfaviðskipti

Hæstiréttur birt 17. nóvember 2016

705/2016

Úlfur Sigurmundsson (Kristján Stefánsson hrl) gegn VBS eignasafni hf (Hróbjartur Jónatansson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var að viðurkenna kröfu sem Ú hafði lýst við slit V hf. Byggði Ú á því að V hf. hefði með ólögmætum og saknæmum hætti farið út fyrir umboð sitt samkvæmt eignastýringarsamningi aðila með kaupum á veðskuldabréfum á árunum 2006 til 2009. Miðuðu kröfur Ú að því að gera hann eins settan við slit V ehf. og ef fjármunum hans í eignastýringu V hf. hefði aldrei verið ráðstafað til kaupa á skuldabréfunum. Var talið að Ú hefði ekki fært fram haldbærar skýringar á því hvers vegna hann teldi tjón vegna þessarar háttsemi hafa numið kröfufjárhæðinni og þá einkum hvort og hvernig hann hefði endurheimt sömu fjárhæð ef V hf. hefði fjárfest í þeim hlutabréfum og skuldabréfum sem honum var heimilt samkvæmt eignastýringarsamningi aðila. Yrði í því sambandi að horfa til þeirra áhrifa sem atburðir á íslenskum fjármálamarkaði síðari hluta árs 2008 hefðu haft á virði hlutabréfa og skuldabréfa. Var því ekki talið að Ú hefði sýnt fram á að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna háttsemi V hf.