Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 7. gr. laga nr. 30/2007 — Lög um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa

Hæstiréttur birt 19. júní 2013

106/2013

Bragi Sigurður Óskarsson (Ólafur Rúnar Ólafsson hrl) gegn Ými sf (Árni Pálsson hrl)
Lykilorð: Orlof. Tómlæti.

B starfaði hjá Ý sf. sem nemi í húsgagnasmíði og síðar húsasmíði og eftir að námi hans lauk. Í málinu krafði hann Ý sf. um vangoldin orlofslaun. Ý sf. neitaði greiðsluskyldu og byggði m.a. á því að orlofslaun hafi verið hluti af heildarlaunum B auk þess sem hann hafi sýnt af sér tómlæti með því að hreyfa engum andmælum við þeirri framkvæmd. Í dómi Hæstaréttar kom fram að tilhögun Ý sf. við greiðslu orlofs hafi farið í bága við fyrirmæli 7. gr. laga nr. 30/1987 um orlof. Þess væri þó að gæta að B hafi ekki getað látið átölulaust um árabil hvernig staðið var að uppgjörinu í trausti þess að geta haft uppi kröfu í kjölfar starfsloka. Þegar af þeirri ástæðu að B hafði ekki gert reka að því að halda fram ætlaðri kröfu staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sýknu Ý sf.