Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 6. gr. laga nr. 30/2007 — Lög um áhafnir íslenskra fiskiskipa, varðskipa, skemmtibáta og annarra skipa
Á aðalfundi V var samþykktum A breytt og fólu breytingarnar meðal annars í sér að allir félagsmenn í V gátu eftir þær tekið þátt í kosningu um breytingar á samþykktum A en ekki aðeins vélstjóramenntaðir félagsmenn eins og áður hafði verið. Var markmiði sjóðsins breytt samhliða þessu þannig að styrkir sem veittir væru til rannsókna tækju til vinnuumhverfis og aðbúnaðar allra félagsmanna V og námsefnis og kennsluaðferða í námi þeirra en ekki aðeins vélstjóramenntaðra. H, sem var vélstjóri og félagsmaður í V, höfðaði mál á hendur V og A og krafðist þess aðallega að viðurkennt yrði að á aðalfundinum hefði engin gild breyting verið gerð á samþykktum A, en til vara að allar ákvarðanir fundarins um breytingar á samþykktum A yrðu ógiltar. Í dómi Hæstaréttar kom fram að heimild til að krefjast viðurkenningardóms væri samkvæmt 2. mgr. 25. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála háð því skilyrði að stefnandi hefði sjálfur lögvarða hagsmuni af því að skorið yrði úr um tilvist eða efni viðkomandi réttinda eða réttarsambands. Til þess að sýnt væri fram á að þessu skilyrði væri fullnægt væri óhjákvæmilegt að stefnandi bæri skýrlega fyrir sig málsástæður um að lögvarðir hagsmunir væru fyrir hendi. Talið var að í stefnu til héraðsdóms hefði H ekki gert viðhlítandi grein fyrir þessu heldur kæmi þar einungis fram að hann, sem félagsmaður í V, ætti ekki að þurfa að þola að samþykktir A væru brotnar og starfsemi sjóðsins breytt með fyrrgreindum hætti. Þá var ekki talið að aðild að félagi leiddi sjálfkrafa til þess að lögvarðir hagsmunir félagsmanns væru ávallt taldir vera fyrir hendi vegna sérhverrar ákvarðanatöku á vettvangi þess. Slíkt þyrfti sem endranær að meta sjálfstætt hverju sinni á grundvelli einstaklegra, beinna og lögvarinna hagsmuna viðkomandi félagsmanns. Hefði H ekki sýnt fram á slíka lögvarða hagsmuni til að fá leyst úr aðalkröfu sinni. Af því leiddi hann hefði ekki heldur lögvarða hagsmuni að fá efnisdóm um varakröfu sína. Var málinu því vísað frá héraðsdómi.
Viðurkennt að kosning um breytingu á samþykktum sjóðs, sem heyrði undir stéttarfélag, hefði ekki farið fram í samræmi við samþykktir sjóðsins og væri því ógild.