Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 34. gr. laga nr. 30/2003 — Lög um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði

Hæstiréttur birt 9. maí 2016

266/2016

Félagsstofnun stúdenta (Óskar Sigurðsson hrl) gegn Kaupþingi banka ehf (Anton Björn Markússon hrl)

Kærður var úrskurður héraðsdóms þar sem hafnað var að viðurkenna kröfu sem F hafði lýst við slit K ehf. Byggði F á því að K ehf. hefði með saknæmum og ólögmætum hætti vanrækt skyldur sínar samkvæmt eignastýringarsamningi aðila og lögum og reglum og með því valdið sér bótaskyldu tjóni. Í málinu hafði F freistað þess að færa sönnur á tjón sitt með dómkvaðningu matsmanns. Í matsgerðinni kom meðal annars fram að nánar tilgreindar fjárfestingar sjóðanna hefðu jafnvel leitt af sér tjón, en að hve miklu leyti tjón F yrði rakið til þess annars vegar en hruns bankakerfisins hins vegar væri nánast útilokað að leggja tölulegt mat á. Héraðsdómur taldi ekki unnt að fallast á með F að sú lækkun sem hefði orðið á verðmæti hlutdeildarskírteina hans eftir 6. október 2008 hafi getað talist tjón hans í skilningi lagareglna um skaðabætur. Þá taldi héraðsdómur að F bæri sönnunarbyrðina fyrir því að hann hefði orðið fyrir tjóni vegna saknæmrar háttsemi sem K ehf. hefði borið ábyrgð á að lögum. Hæstiréttur tók fram að F hefði ekki sýnt fram á að tjón hefði hlotist af saknæmri og ólögmætri háttsemi K ehf. Að því virtu og með vísan til forsendna hins kærða úrskurðar var hann staðfestur.