Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 2. gr. laga nr. 28/2001 — Lög um rafrænar undirskriftir
Aðilar deildu um hvort fimm lánveitingar sem gerðar voru á grundvelli lánssamnings hefðu verið lán í erlendri mynt eða lán í íslenskum krónum með ólögmætri gengistryggingu. Var tekið fram að í fyrrnefndum lánssamningi hefði hvorki verið að finna yfirlýsingu F ehf. um að hann stæði í skuld við bankann né að hann myndaði kröfuréttindi bankans á hendur F ehf. heldur hefði samningurinn aðeins sett ramma utan um lánsviðskipti milli þeirra. Var talið samkvæmt gögnum málsins að F ehf. hefði óskað eftir öllum lánshlutunum í tilgreindum erlendum gjaldmiðlum. Var því talið að lán F ehf. hefðu verið gild lán í erlendum gjaldmiðlum og Í hf. sýknað af kröfu F ehf.
Frosti ehf gegn
Íslandsbanka hf
Ágreiningur um hvort lán væru gengistryggð.