Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 3. mgr. 10. gr. laga nr. 21/1992 — Lög um Lánasjóð íslenskra námsmanna
Edda Guðmundsdóttir, Ellen Herdís Steingrímsdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Hermann Ö. Steingrímsson, Hlíf Steingrímsdóttir, John, Bryan og Steingrímsson (
Tómas Hrafn Sveinsson hrl)
gegn
Lánasjóði íslenskra námsmanna (
Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
Í málinu var deilt um það hvort E o.fl. sem erfingjar í dánarbúi SH, sem hafði verið skipt einkaskiptum, bæru gagnvart L ábyrgð á skuldbindingum hans sem sjálfskuldarábyrgðarmanns á námslánum SNS en á því var dómkrafa L á hendur þeim reist. Ekki var fallist á með E o.fl. að ábyrgðarskuldbinding SH yrði með stoð í 36. gr. laga nr. 7/1936 um samningsgerð, umboð og ógilda löggerninga vikið til hliðar í heild eða að hluta, hvorki vegna atvika við samningsgerðina, atvika sem síðar komu til né vegna efnis ábyrgðarskuldbindinganna. Þá var ekki fallist á að efnisreglu 4. mgr. 9. gr. laga nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna, er kveður á um að endurgreiðslur af námslánum sem koma í gjalddaga eftir andlát lánþega falla sjálfkrafa niður, yrði beitt með lögjöfnun við andlát ábyrgðarmanns. Talið var að E o.fl. hefðu ekki sýnt fram á að fastmótuð stjórnsýsluframkvæmd hefði verið til staðar hjá L við innheimtu námslána eftir andlát ábyrgðarmanns og að henni hefði verið breytt á óheimilan hátt. Þá hefðu E o.fl. ekki getað haft réttmætar væntingar um að innheimtu gagnvart þeim í skjóli ábyrgðarskuldbindingar SH yrði hagað með öðrum hætti en birtar reglur L hefðu kveðið á um. Fallist var á með E o.fl. að L hefði vanrækt tilkynningarskyldu gagnvart þeim samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn, en um afleiðingar þess ræddi í 2., 3. og 4. mgr. lagagreinarinnar. Talið var að þótt L hefði gjaldfellt lánið gagnvart SNS, áður en hann hefði gefið E o.fl. sem ábyrgðarmönnum kost á að koma því í skil og gefa út nýtt skuldabréf fyrir eftirstöðvunum, hefði L með því boði sínu til E o.fl. fullnægt skyldu sinni samkvæmt 4. mgr. 7. gr. laganna. Þá hefði L, með því að gagnáfrýja ekki niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um greiðslu dráttarvaxta af hinni gjaldfelldu skuld og málskostnaðar, axlað gagnvart E o.fl. skyldur lánveitanda samkvæmt 3. mgr. sömu greinar. Gæti þetta því ekki ekki leitt til sýknu þeirra. Loks var ekki talið að um verulega vanrækslu L hefði verið að ræða í skilningi 2. mgr. 7. gr. laga nr. 23/2009. Samkvæmt framansögðu var fallist á dómkröfu L
Lánasjóður íslenskra námsmanna (
Sigurbjörn Ársæll Þorbergsson hrl)
gegn
Steingrími Neil, Hermannssyni, Eddu Guðmundsdóttur, Hermanni Ö, Steingrímssyni, Hlíf, Steingrímsdóttur, Guðmundi, Steingrímssyni, John Bryan, Steingrímssyni og Ellen Herdísi Steingrímsdóttur (
Tómas Hrafn Sveinsson hrl)
Skuldamál