Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 2. mgr. 4. gr. laga nr. 21/1990 — Lög um lögheimili

Landsréttur birt 26. janúar 2024

823/2022

Björgvin Örn Antonsson (Kristján Gunnar Valdimarsson lögmaður) gegn íslenska ríkinu (Ingvi Snær Einarsson lögmaður)
Málaflokkur: Skattaréttur

B höfðaði mál gegn Í og krafðist þess aðallega að felldir yrðu úr gildi úrskurðir yfirskattanefndar 23. desember 2020 og ríkisskattstjóra 12. febrúar 2020 um fulla og ótakmarkaða skattskyldu hans á Íslandi samkvæmt lögum nr. 90/2003 um tekjuskatt á tímabilinu 1. janúar 2014 til 19. apríl 2017. Til vara krafðist B þess að úrskurðir yfirskattanefndar 23. júní 2023 og ríkisskattstjóra 27. ágúst 2020 yrðu felldir úr gildi að hluta og þeim breytt þannig að fellt yrði niður álagt útsvar á hann vegna tekjuáranna 2014, 2015, 2016 og 2017, frádráttur yrði heimilaður á móti tekjum vegna fullra dagpeninga samkvæmt reglum um skattmat fyrir hvert tekjuár 2014,2015, 2016 og 2017 að álag yrði fellt niður fyrir tekjuárin 2014, 2015, 2016 og 2017. Í hinum áfrýjaða dómi var komist að þeirri niðurstöðu að B hafi ekki fellt niður heimilisfesti sína heldur verið heimilisfastur hér á landi á umræddu tímabili, sbr. 1. tölulið 1. mgr. 1. gr. laga nr. 90/2003, og borið fulla og ótakmarkaða skattskyldu. Þá var varakröfum hans hafnað. Var Í því sýknað af öllum kröfum B og honum gert að greiða málskostnað. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur um annað en málskostnað sem felldur var niður á báðum dómstigum.