Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lagagrein: 31. gr. laga nr. 19/2002 — Lög um póstþjónustu
L hf. beindi kröfu til héraðsdóms um að bú G ehf. yrði tekið til gjaldþrotaskipta. Þegar krafan var tekin fyrir í þinghaldi var ekki mætt af hálfu G ehf. og gekk úrskurður samdægurs um að bú hans væri tekið til gjaldþrotaskipta. Með beiðni til héraðsdóms leitaði G ehf. eftir endurupptöku á meðferð kröfu L hf., sbr. 1. mgr. 137. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála. Varð héraðsdómur við þeirri beiðni og var málið í framhaldi af því þingfest til að leysa úr ágreiningi um hvort bú G ehf. skyldi tekið til gjaldþrotaskipta. Féllst héraðsdómur á kröfu L hf. og kærði G ehf. úrskurðinn til Hæstaréttar. Var málinu vísað frá Hæstarétti þar sem G ehf. hafði ekki aflað leyfis réttarins til málskots samkvæmt 3. mgr. 142. gr. laga nr. 91/1991.
Ógildingarmál.