Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

3 dómar fundust

Lagagrein: 88. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 8. febrúar 2008

38/2008

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gegn A (Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson hdl)

A fann á bifreið sinni svokallaðan eftirfararbúnað, sem hann taldi í eigu L. Leitaði hann í málinu úrlausnar um lögmæti rannsóknarathafna, sem hann taldi beint gegn sér, sbr. 75. gr. laga nr. 19/1991. L bar ekki á móti því að umræddur búnaður væri í hans eigu eða að rannsókn beindist að A. Laut málatilbúnaður hans eingöngu að því að rökstyðja að honum væru almennt heimilar slíkar rannsóknarathafnir án dómsúrskurðar. Var talið að L yrði að bera hallan af því að hafa ekki gert fullnægjandi grein fyrir því á hvaða grundvelli rannsókn væri beint að A og var því fallist á kröfu A og mælt fyrir um að L bæri að láta af umræddri rannsóknaraðgerð.

Hæstiréttur birt 22. nóvember 2001

69/2001

Elsa Jónsdóttir (Kristján Stefánsson hrl) gegn íslenska ríkinu (Skarphéðinn Þórisson hrl)

E var handtekin vegna rökstudds gruns um aðild að fíkniefnainnflutningi með skipinu B. Fannst mikið magn fíkniefna í bifreið sem E var farþegi í og ekið var frá skipshlið. Voru því uppfyllt skilyrði 1. mgr. 97. gr. laga nr. 1991 til handtöku E. Einnig var talið að fullnægt hefði verið skilyrðum a-liðar 1. mgr. 103. gr. sömu laga til að úrskurða E í gæsluvarðhald. Með hliðsjón af málsatvikum, rannsóknargögnum og skýringum var talið að yfirheyrslum hefði verið unnt að ljúka fyrr en gert var og að gæsluvarðhald í sjö daga hefði fullnægt rannsóknarþörfum. Með því að gæsluvarðhaldstími umfram það hafði ekki verið réttlættur var E talin eiga rétt á miskabótum með vísan til 176. gr., sbr. 1. mgr. 175. gr. laga nr. 19/1991. Gögn málsins studdu ekki fullyrðingu E um að líkamsleit, sem gerð var á henni, hefði farið fram gegn andmælum hennar. Voru því ekki skilyrði til að taka bótakröfu E til greina að þessu leyti. Þá var og hafnað bótakröfu E vegna atvinnutjóns, þar sem sú krafa var ekki studd nægilegum gögnum.

Hæstiréttur birt 3. september 2001

316/2001

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Páll A. Pálsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Afhending gagna.

Kærður var úrskurður héraðsdómara þar sem hafnað var kröfu X um að fá afhent endurrit fjögurra úrskurða um símhleranir hjá honum. Hæstiréttur féllst á kröfu X og taldi sóknaraðila bresta heimild til að synja X um aðgang að umræddum úrskurðum.