Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
2 dómar fundust
Lykilorð: Rannsóknarathafnir
Kærumál. Rannsóknarathafnir. Frávísun máls að hluta frá héraðsdómi. Gögn. A fann á bifreið sinni svokallaðan eftirfararbúnað, sem hann taldi í eigu L. Leitaði hann úrlausnar dómstóla um lögmæti rannsóknarathafna sem hann taldi beint gegn sér, sbr. 75. gr. laga nr. 19/1991. Í dómi 8. febrúar 2008 var L gert að láta af umræddri rannsóknaraðgerð. Í því máli sem hér var til úrlausnar hafði héraðsdómari vísað frá dómi kröfu A um að verjanda hans yrði veittur aðgangur að rannsóknargögnum. Var niðurstaða héraðsdóms um frávísun aðalkröfu A staðfestur en lagt fyrir héraðsdómara að taka varakröfu hans til efnismeðferðar. Tekið var fram að skipun verjanda hefði fallið niður við uppkvaðningu fyrrnefnds dóms Hæstaréttar en ekki talið loku fyrir það skotið að hann kynni að eiga aðgang að gögnunum sem talsmaður A. Það heyrði hins vegar til efnisúrlausnar máls að skera úr um það hvort veita ætti slíkan aðgang.
A fann á bifreið sinni svokallaðan eftirfararbúnað, sem hann taldi í eigu L. Leitaði hann í málinu úrlausnar um lögmæti rannsóknarathafna, sem hann taldi beint gegn sér, sbr. 75. gr. laga nr. 19/1991. L bar ekki á móti því að umræddur búnaður væri í hans eigu eða að rannsókn beindist að A. Laut málatilbúnaður hans eingöngu að því að rökstyðja að honum væru almennt heimilar slíkar rannsóknarathafnir án dómsúrskurðar. Var talið að L yrði að bera hallan af því að hafa ekki gert fullnægjandi grein fyrir því á hvaða grundvelli rannsókn væri beint að A og var því fallist á kröfu A og mælt fyrir um að L bæri að láta af umræddri rannsóknaraðgerð.