Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 5. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 21. nóvember 2002

519/2002

Ákæruvaldið (Kolbrún Sævarsdóttir fulltrúi) gegn X (enginn)
Lykilorð: Kærumál. Vitni.

Hæstiréttur hafnaði kröfu ákæruvaldsins um að skýrsla yrði tekin af tveimur vitnum gegnum síma í opinberu máli gegn X.

Hæstiréttur birt 22. október 2002

468/2002

Ákæruvaldið (enginn) gegn X (Björn Ólafur Hallgrímsson hrl)
Lykilorð: Kærumál. Dómari. Vanhæfi.

Héraðsdómarinn G vék sæti í máli ákæruvaldsins gegn X eftir að myndbandsupptaka úr öryggismyndavél, sem hann hafði horft á, eyðilagðist við afritun hjá lögreglu. Var í framhaldi af því ákveðið að héraðsdómur í málinu skyldi vera fjölskipaður. X krafðist þess þá að héraðsdómararnir H og P auk F, dómstjóra, vikju sæti þar sem þau væru öll samstarfsmenn G, sem hefði látið frá sér fara rökstuðning fyrir ákvörðun sinni sem fæli í sér afstöðu hans til sönnunargagna í málinu. Héraðsdómur féllst á kröfu X um að P, sem var mágur G, viki sæti, en hafnaði á hinn bóginn kröfu hans um að þau H og F vikju einnig sæti í málinu. X skaut úrskurðinum til Hæstaréttar þar sem hann krafðist þess að síðastnefndir dómarar vikju sæti í málinu. Með dómi Hæstaréttar var niðurstaða hins kærða úrskruðar staðfest að því leyti, sem hún var til endurskoðunar fyrir réttinum.