Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

1 dómar fundust

Lagagrein: 3. mgr. 43. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 18. maí 2000

45/2000

Ákæruvaldið (Bogi Nilsson ríkissaksóknari) gegn Þórhalli Ölver Gunnlaugssyni (Hilmar Ingimundarson hrl)
Málaflokkur: Ofbeldisbrot

Þ var ákærður fyrir manndráp og þjófnað með því að hafa veist að A á heimili hans og banað honum með því að stinga hann með hnífi eða hnífum mörgum sinnum í brjósthol, bæði framan og aftan frá og hafa síðan slegið eign sinni á skartgripi sem geymdir voru á heimili A. Fyrir dómi neitaði Þ því að hafa banað A, en hann hafði margsinnis viðurkennt verknaðinn fyrir lögreglu. Fallist var á það með héraðsdómi að Þ hefði ekki gefið trúverðuga eða haldbæra skýringu á því, hvers vegna hann breytti framburði sínum fyrir dómi. Var niðurstaða héraðsdóms um að Þ hefði orðið A að bana staðfest. Verknaður ákærða var talinn ásetningsbrot og heimfærður til 211. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Þ viðurkenndi þjófnað af heimili A og var það brot ekki til endurskoðunar fyrir Hæstarétti að því er varðaði sakfellingu. Þ var talinn sakhæfur. Samkvæmt 17. gr. almennra hegningarlaga var það ekki talið hafa áhrif á ákvörðun refsingar að verknaðurinn var framinn undir áhrifum fíkniefna. Var Þ dæmdur í fangelsi í 16 ár.