Fara í efni

Dómstólaleit

Leit í dómum íslenskra dómstóla

Leita í öllum dómstólum...

Niðurstöður

2 dómar fundust

Lagagrein: 42. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála

Hæstiréttur birt 30. mars 2010

429/2009

Opale Seafood SAS (Reynir Karlsson hrl) gegn Vigni G. Jónssyni hf (Garðar Briem hrl)

O áfrýjaði dómi héraðsdóms þar sem honum var gert að greiða V hf. skuld. Þá krafðist hann endurskoðunar úrskurðar þar sem hafnað var kröfu hans um frávísun málsins. Talið var að þótt O ætti varnarþing í Frakklandi hafi verið heimilt, samkvæmt 1. mgr. 43. gr., sbr. 1. mgr. 42. gr., laga nr. 91/1991, að höfða málið fyrir Héraðsdómi Reykjaness. Var kröfu O um frávísun málsins því hafnað. Talið var sannað að O hafi samþykkt greiðsluskilmála V hf. Þá var ekki talið að O ætti bótakröfu á hendur V hf. og var því staðfest niðurstaða héraðsdóms um að O yrði gert að greiða V hf. skuldina.

Hæstiréttur birt 7. október 1999

408/1999

Lögreglustjórinn í Reykjavík (Egill Stephensen saksóknari) gegn X (Björgvin Þorsteinsson hrl)

Staðfestur var úrskurður héraðsdómara um að verjendur annarra sakborninga en þess sem taka átti skýrslu af, á grundvelli b. liðar 1. mgr. 74. gr. a. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, skyldu ekki vera viðstaddir skýrslutökuna, þar sem það var ekki talið hættulaust fyrir rannsókn málsins, sbr. 2. málsl. 2. mgr. 42. gr. laga nr. 19/1991.