Leita í öllum dómstólum...
Niðurstöður
3 dómar fundust
Lagagrein: 34. gr. laga nr. 19/1991 — Lög um meðferð opinberra mála
Ákæruvaldið (Helgi Jensson fulltrúi) gegn
Vilhelm Norðfjörð Sigurðssyni (sjálfur)
V var sakfelldur fyrir líkamsárás sem var talin varða við 1. mgr. 217. gr. almennra hegningarlaga. Með broti sínu rauf hann skilorð tveggja mánaða fangelsindóms. Var refsing hans ákveðin í einu lagi 3 mánaða fangelsi.
Úrskurður héraðsdóms um að ekki væru efni til að skipa X verjanda á grundvelli 35. gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála, þrátt fyrir ósk hans um það, var staðfestur.
Á var ákærður fyrir brot gegn 120. gr. a almennra hegningarlaga nr. 19/1940 fyrir að hafa í nafni samtakanna F dreift í tölvupósti til fjölda viðtakenda „tilhæfulausri viðvörun um sprengjutilræði gegn íslenskri flugvél, sem var til þess fallin að vekja ótta um líf, heilbrigði og velferð manna“. Að virtum framburði Á og orðalagi viðvörunarinnar þótti ekki komin fram lögfull sönnun þess að með Á hafi búið sá ásetningur sem áskilinn er í nefndu refsiákvæði. Þegar af þeirri ástæðu var Á sýknaður af öllum kröfum ákæruvaldsins.